fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Kannski í fyrsta lagi til að fylgja eftir fyrri spurningunni: Telur ráðherra að það verklag sem viðhaft hefur verið hingað til hafi að einhverju marki dregið úr framboði lyfja eða öryggi afhendingar þeirra? Það er fyrri spurningin í seinna slottinu mínu.
Hin spurningin snýr að svari hæstv. ráðherra áðan þar sem hún lýsti norrænu samstarfi við lyfjainnkaup. Nú hafa komið fram hugmyndir, m.a. voru þær nefndar hér af þingmanni Miðflokksins í gær, hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni, um breytt hlutverk Lyfjastofnunar. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hver afstaða ráðherrans er til breyttrar framkvæmdar, stöðu, umfangs Lyfjastofnunar með þau sjónarmið í huga að auka enn á norrænt samstarf og minnka þá umfang stofnunarinnar hér heima.