157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:27]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir framsöguna. Mig langaði að spyrja hana nokkurra spurninga sem tengjast þessum málaflokki. Það sem ég hef sérstakan áhuga á eru mönnunarmál og þá sérstaklega á landsbyggðinni. Það hefur lengi gengið illa að manna störf á landsbyggðinni. Því langar mig að forvitnast um það hvort hún sjái fyrir sér einhverja leið, ég sé það ekki í þessu í fjárlagafrumvarpi, um það hvernig eigi að mæta þeim mönnunarvanda sem á landsbyggðinni er. Þar vil ég þá kannski sérstaklega ræða heilsugæslustöðvarnar.

Af því að tíminn er stuttur langar mig að nefna hérna sérhæfða sjúkrahúsþjónustu. Þar er liður þar sem á að spara 1 milljarð vegna stofnunar fagráðs um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu og tillögur þar verði nánar útfærðar í 2. umræðu fjárlaga. Gæti ráðherra komið aðeins inn á þetta og kannski upplýst í hverju þetta þá fælist? Ég sé ekki alveg í fljótheitum að þetta gæti náðst. Ég hef áður nefnt við hæstv. ráðherra að ég tel að við séum að gera mistök með því að efla ekki þær stofnanir sem eru undir í heilbrigðiskerfinu og ég vil sérstaklega nefna Sjúkratryggingar sem hafa gríðarlega mikilvægt hlutverk í því að ná niður kostnaði í heilbrigðiskerfinu og ég tel að það þurfi að styrkja sérstaklega Sjúkratryggingar, og hvort þess sjáist merki í þessu.

Ég mun þá spyrja um restina hér á eftir.