157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:33]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Aftur þakka ég þingmanninum. Hjúkrunarheimilin voru auðvitað til umræðu í stjórnarmyndun og eftir á að hyggja hjá mér þá er þetta kannski bara ágætt því að þetta skapar ákveðinn þrýsting hvort á annað, að byggja hjúkrunarheimili og reka þau, því að félagsmálaráðherra sér um uppbyggingu og svo kemur heilbrigðisráðuneytið að rekstri.

Aðhald. Þar er margt undir. Kostnaður t.d. við lyf hefur aukist gríðarlega og það hefur allt lent á ríkinu þó svo að það standi í lögum frá Alþingi að það eigi að uppfæra greiðsluþátttöku árlega. Það átti að sjá til þess að hlutfall ríkisins t.d. í lyfjakaupum yrði stöðugt en það hefur auðvitað gliðnað þannig að nú er þessi ráðherra bara að gera það sem lögin kveða á um.

Við ætlum að endurskoða komugjöld. Það er ekki búið að útfæra þau en það verður auðvitað kynnt.