fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Lyfjalögin er að finna í þingmálaskrá. Þau eru ekki endurflutt heldur koma þau með breyttu sniði. Þau eru þarna og að auki er eitt innleiðingarfrumvarp.
Ég fór yfir það í mínum inngangi að við leggjum mikla áherslu á hagræðingu og sjáum ekki að eina svarið við áskorunum í kerfinu sé að bæta við fjármunum heldur að nýta betur og, eins og ég nefndi áðan, fara reglulega yfir hvort við erum við að gera eitthvað sem við ættum ekki að gera og eins hvort við erum ekki að gera eitthvað sem við ættum að gera.
Það sem er tilgreint er fagráð um forgangsröðun sem er ætlað einmitt að skoða hluti sem við ættum að hætta að gera og líka það sem kallað er lágvirðisþjónusta. Síðan munum við leggja mikla áherslu á opinber innkaup og að í fara í sameiginleg innkaup milli — við erum að byrja á prufuverkefni sem er Landspítali, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Heilbrigðisstofnun Suðurlands og síðan mun þetta víkka út. Við erum með hagræðingar og þarna ætlum við að spara tæpar 800 millj. kr. sem við reiknum með á næsta ári. Síðan er það betri nýting tækja og mannafla í rannsóknarþjónustu. Þar erum við með 200 milljónir og síðan sameiginleg innkaup á lyfjum og öðrum rekstrarvörum um 300 milljónir.
Eins og ég var að nefna erum við að endurskoða greiðsluþátttökukerfi. Það er annars vegar á lyfjum og hins vegar heilbrigðisþjónustu og þarna er auðvitað líka bara spurning um að nota hvata rétt. Við höfum auðvitað gríðarlega gott aðgengi að heilbrigðisþjónustu en það eru alveg tækifæri til að nýta hvata og girðingar með vönduðum hætti þannig að þangað munum við líta.