157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það var ágætt að heyra þessar tölur. Í heildarsamhengi þessara útgjalda þurfa þær í raun að hækka og ég bara brýni hæstv. ráðherra til að ganga með opin augu og huga til þess verkefnis því það er auðvitað þannig að þar sem umfangið er svona mikið blasir við að einhvers staðar er svigrúm til að ná meiru fyrir minna og geta þá eftir atvikum ráðstafað þeim sparnaði til annarra mikilvægra verkefna.

Hv. þm. Ólafur Adolfsson tók nú af mér spurningu sem snýr að mönnun, sérstaklega á landsbyggðinni, en mig langar að spyrja hæstv. ráðherra þá hér undir lokin hvaða hækkunartaktur umfram verðlagsþróun og launaþróun hæstv. ráðherra telji að sé eðlilegur hvað heildarútgjöld til heilbrigðismála varðar, að teknu tilliti til aldurssamsetningar þjóðar, fjölda og þar fram eftir götunum. Hefur hæstv. ráðherra sýn á það til viðbótar við það sem má lesa út úr fjármálaáætlun (Forseti hringir.) hversu miklum kostnaðarauka við megum eiga von á umfram almenna verðlagsþróun til næstu framtíðar, (Forseti hringir.) segjum tíu ára?