fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Það er auðvitað erfitt að svara þessari spurningu en það er gríðarleg innviðaskuld í heilbrigðiskerfinu. Hún er í húsnæði og viðhaldi þess, hún er í mönnun eins og hér hefur verið rætt fyrr í dag, hún er í tækjabúnaði og hún er í rafrænum kerfum. Þarna er auðvitað margt sem spilar inn í, hrunið ekki síst, þannig að við erum enn ekki búin að vinna það upp. Hagræðing sem við náum fer auðvitað inn í þetta líka, að vinna niður biðlista o.s.frv., en við erum að verja minni fjármunum til heilbrigðisþjónustu heldur en nágrannalöndin. Við erum núna í 8,3% af vergri landsframleiðslu. Mér finnst ekki keppikefli að auka það eða ákveða einhverja upphæð heldur viljum við bara veita þá þjónustu sem þarf með hagkvæmum hætti. Mér hefur þótt aðeins vanta stefnumótun, við erum með heilbrigðisstefnu úr 30.000 fetum en að við lækkum flugið niður á einstaka þjónustuflokka og ríkið ákveður hvaða þjónustu það ætlar að veita og hvar.