157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:52]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Auðvitað er það ekki þannig að við ætlum að leggja fjármagn inn í þennan málaflokk bara af því bara. Það er í raun til þess að við getum, t.d. gagnvart heitavatnsleitinni sem skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli — ég get bara nefnt Patreksfjörð þar sem heitt vatn var að finnast. Það mun auðvitað breyta öllu fyrir samfélagið og það eru mörg önnur samfélög sem við ættum einmitt að vera horfa á með sama hætti. Ég fékk að vísu ekki svar við neinu varðandi rammann, með breytingar þar, en það kemur kannski núna.

Á þessum síðustu sekúndum sem ég hef langar mig svo aðeins að ræða einföldun regluverks. Nýlega var kynnt hér að heilbrigðiseftirlitsumdæmin yrðu í rauninni sett undir Umhverfisstofnun. Ég velti fyrir mér: Hvernig sér ráðherra fyrir sér að eftirlitinu verði háttað ef það á í rauninni að færa þetta eingöngu til stofnunarinnar? Verður þá allt eftirlit unnið þaðan eða þarf að halda heilbrigðiseftirlitsumdæmunum?