157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:55]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir hans ræðu. Ég vil, vegna þess að ráðherra var að kynna aðgerðir í loftslagsmálum, nefna þau atriði sem snúa að þeim málaflokki og er að finna í þingmálaskrá. Við sjáum þarna nr. 8 frumvarp um breytingu á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Nr. 16 er frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna innleiðingar EES-gerða um aukna notkun endurnýjanlegs eldsneytis, EES-reglur, orkuskipti, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Það kom fram á fundi ráðherra í dag að við þyrftum að fara að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða, ef mér skjátlast ekki þá voru 11 milljarðar nefndir. Í ræðu hér í gær nefndi hv. þm. Miðflokksins að það væri gert ráð fyrir að útgjöld til loftslagsmála væru 22,7 milljarðar á ári á næstu fjórum árum en hefðu verið 18 milljarðar á síðustu átta árum. Þessi kostnaður er væntanlega til þess að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda sem við erum síðan að fara að borga milljarða til að fá að losa, þetta hreina land, Ísland. Þingmaðurinn taldi að það væri möguleiki á því að spara talsverða fjármuni í þessum málaflokki. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann deili þeirri skoðun þingmannsins.