fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það eru auðvitað ótal dæmi um lönd sem eru að skila meiri samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda heldur en við og hafa sett sér metnaðarfyllri markmið og eru síður í þeirri stöðu að þurfa að kaupa losunarheimildir. Við höfum undirgengist ákveðið samstarf við Evrópusambandið og ég hef fulla trú á því að við getum saxað á þessa 11 milljarða tölu með því að ganga rösklega til verka. Einmitt þess vegna erum við að koma með inn í þingið ný loftslagslög sem snúast um að auka skilvirknina í þessum málaflokki og einmitt þess vegna sagði ég í dag að stjórnvöld þurfi að taka miklu skýrari forystu í loftslagsmálum sem samhæfingaraðili milli stjórnvalda, milli stjórnsýslustiga og atvinnulífsins og þetta er spennandi verkefni og þetta er gerlegt, svo sannarlega.