fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég heyri að hann hefur ekki skipt um skoðun varðandi sérlög.
Mig langaði aðeins að halda áfram varðandi leyfisferlana vegna þess að ég hef heyrt af áhyggjum ýmissa hagaðila af því t.d. að tímafrestir verði þrengdir um of sem setur þá aðila í mikla tímapressu og erfiðleika sem þurfa að gefa umsagnir. Það er gott að heyra að hæstv. ráðherra í raun og veru staðfestir það hér að hraði verði ekki á kostnað gæða og það verði ekki slegið af kröfum og ég bið þá hæstv. ráðherra um að endurstaðfesta hér.
Síðan langar mig að taka undir orð hv. þm. Guðbrands Einarssonar sem spurði hæstv. ráðherra hérna áðan hvers vegna við þurfum að kaupa losunarheimildir. Ísland með alla þessa hreinu orku, af hverju erum við í þessari stöðu? (Forseti hringir.) Af hverju þurfum við að vera að kaupa losunarheimildir fyrir alla þessa fjármuni?