157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:12]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Gott að fá tækifæri til að ræða um vindorkumálin. Ég hef verið gagnrýndur t.d. fyrir að setja inn í samráðsgátt tillögu um að einn af tíu vindorkukostum sem komu til umfjöllunar í rammaáætlun fari í nýtingarflokk. Það er kannski ágætt að nefna, vegna þess sem hv. þingmaður spyr: Stendur til að veita leyfi til til vindorkuverkefna meðan ekki liggur fyrir skýr rammi? að Alþingi hefur þegar í raun gefið grænt ljós í gegnum samþykkt rammaáætlunar á tvo vindorkukosti. Þar var það einmitt þannig að verkefnisstjórn rammaáætlunar lagði til að þeir færu í biðflokk en þingið, bara á síðustu metrunum við afgreiðslu rammaáætlunar, setti þá í nýtingarflokk. Það sem ég er hins vegar að gera núna t.d. er að ég legg inn í samráðsgáttina Garpsdal. Þar fer þá fram umsagnarferli í tólf vikur. Svo sjáum við til hvort við komum með málið fyrir þingið í beinu framhaldi. Ég ætla reyndar ekki að gera það nema einmitt að við séum þá búin að samþykkja heildstæða löggjöf um það hvernig vindorkan passar inn í rammaáætlun.

Það sem við erum að vinna að núna er löggjöf sem felur í sér í fyrsta lagi það að við erum að falla frá öllum hugmyndum um einhvers konar sérstaka meðferð vindorkukosta eða flýtimeðferð fram hjá rammaáætlun. Í öðru lagi erum við að rauðmerkja stór svæði á landinu og taka beinlínis pólitíska ákvörðun um að þar eigi engin vindorkuverkefni heima. Í þriðja lagi verður það þannig samkvæmt þessum lögum, ólíkt því sem gengur og gerist almennt í rammaáætlunarlöggjöfinni, að sveitarfélög verða ekki bundin af niðurstöðum rammaáætlunar og samþykki þingsins á rammaáætlun þegar kemur að skipulagi síns lands. Þetta felur í sér í raun eins konar neitunarvald til sveitarfélaga þegar kemur að vindorkunýtingu. Ég held að svona rammi sé eina leiðin til að skapa einhverja lágmarkssátt um þessa orkuöflunarleið, leið sem skiptir auðvitað gríðarlegu máli (Forseti hringir.) úti um allan heim til að ná loftslagsmarkmiðum. Nú sjáum við auðvitað Bandaríkin beinlínis í stríði gegn vindorku. Ég mun aldrei taka undir slík sjónarmið. (Forseti hringir.) Ég tel að vindorkan — við eigum að fara þangað en fara mjög varlega og að það séu aðeins örfáir staðir á landinu þar sem þetta á heima af því við þurfum líka að vernda þessa sérstöðu sem við eigum með ósnortnum víðernum.

(Forseti (EÁs): Ég bið hæstv. ráðherra að virða ræðutímann.)