157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:15]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Takk fyrir þessa spurningu. Stutta svarið er kannski: Nei, ég tel svo ekki vera og ég held að það væri talsverð stefnubreyting ef pólitíkin fær að slá því algerlega föstu að öll orkuframleiðsla alls staðar verði að vera í eigu ríkis og sveitarfélaga eða hins opinbera, opinberra fyrirtækja. En ég er hins vegar sannfærður um það að hið opinbera eigi áfram að bera hitann og þungann af orkuframleiðslu í landinu og skila ríkissjóði góðum arði í gegnum þessi fyrirtæki sem við eigum saman. Ég mun aldrei styðja það t.d. að það verði farið í það að brjóta upp eða selja Landsvirkjun. En að öðru leyti nei, þá get ég ekki tekið undir þá nálgun að öll orkuframleiðsla alls staðar í landinu verði að vera á forræði hins opinbera.