fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég er ánægður með svörin frá hæstv. ráðherra og tek undir með honum varðandi friðlýsingarferlið. Það er auðvitað sérstakt að við skulum vera að vernda sérstaklega gagnvart notkun orku og síðan sé hægt í rauninni að gera nánast hvað sem er annað. Mig langar að lokum til að spyrja hæstv. ráðherra — vindorkan hefur verið gagnrýnd töluvert og ég var t.d. með ráðherra á fundi á Hvanneyri þar sem var augljóst hver stemningin var — hvort við verðum ekki líka að horfa til þeirra vatnsaflsvirkjana sem þurfa óhjákvæmilega að vera til staðar þar sem ákveðið er að setja niður vindorkuna til að geta í rauninni sveiflujafnað og hvort við þurfum þá ekki að hugsa þetta mál hratt og heildstætt.