157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:23]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég tek undir þetta. Við verðum að horfa á samspilið milli vatnsaflsins og vindsins. Svo er ég líka algerlega á móti því að fara að setja upp vatnsaflsvirkjanir gagngert til að sjá vindorkuverum fyrir jöfnunarorku, það myndi ekki hugnast mér. Ég lít kannski fyrst og fremst á þetta sem svona risastóran takmarkandi þátt þegar kemur að vindorkunýtingu og eina af ástæðum þess að ekki kemur til greina að fara að teppaleggja landið með vindorkugörðum. Til þess að þeir séu hagkvæmir og til að dæmið gangi upp þá þarf þessa jöfnunarorku. Þetta er bara ákveðin hindrun sem ætti í sjálfu sér að leiða til þess að við förum mjög varlega í að taka frá svæði fyrir vindorkuverkefni.