fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég tek undir það að það er mjög mikilvægt að þeir aðilar sem eru að þróa þessi verkefni virði lög og reglur. Ég veit ekki hvaða tilvik hv. þingmaður er nákvæmlega að tala um en ég tek undir það og það er alvarlegt ef eitthvað hefur verið sett upp í leyfisleysi í blóra við reglur. Ég er sammála hv. þingmanni að það er algerlega óþolandi — við vorum nú saman á fundinum á Hvanneyri fyrir nokkrum vikum, ég og hv. þm. Ólafur Adolfsson og fleiri hv. alþingismenn — fyrir fólk að hafa hangandi yfir sér jafnvel árum saman einhver vindorkuáform. Stundum eru þetta áform sem eru gersamlega óraunhæf sem maður gæti nánast bara fullyrt að verði aldrei að veruleika. En að þessi óvissa sé hangandi yfir heilu sveitarfélögunum og samfélögunum — 40 vindorkugarðar, stefnt að 40 vindorkugörðum, þetta er það sem heyrist í fjölmiðlum en það er ekkert sem bendir til þess að það verði nokkurn tímann pólitísk samstaða um það hér á Alþingi, hvorki í stjórnarmeirihlutanum né á Alþingi almennt, að fara að koma 40 vindorkuverkefnum af stað. Við þurfum því að skapa ákveðinn fyrirsjáanleika og sums staðar munu aðilar bara þurfa að fá rauða spjaldið, (Forseti hringir.) bara þvert nei til að létta þessari óvissu af nærsamfélaginu og það er eitt af því sem vinnan okkar, (Forseti hringir.) þegar kemur að löggjöf um vindorkuna, miðar að, bara að búa til þennan skýrleika.