fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það er mér sönn ánægja að geta staðið hér í dag og talað um málefni sem snerta okkur öll, menntun barna okkar, velferð fjölskyldna og framtíð þjóðarinnar því við vitum það öll að ef við ætlum að byggja sterkt samfélag þá byrjum við á börnum okkar og menntakerfinu. Það er þar sem grunnurinn er lagður.
Í fjárlagafrumvarpinu sem nú liggur fyrir er skýrt að við setjum menntun og barnamál í forgang. Við erum að auka framlög til framhaldsskólanna, til verknámsins, til barna og fjölskyldna í landinu. Þetta eru ekki bara tölur á blaði, þetta er fjárfesting í framtíðinni. Við sjáum það nú þegar svart á hvítu að þessi ríkisstjórn leggur meiri áherslu á framhaldsskólastigið en sú síðasta. Á næsta ári fá framhaldsskólarnir yfir 53 milljarða kr. sem er 7 milljörðum meira en fyrir þremur árum. Þetta sýnir líka svart á hvítu að menntun er í forgangi hjá ríkisstjórninni. Þetta er raunhækkun á milli ára sem skiptir miklu máli.
Við erum líka að styrkja verknámið sérstaklega. Það hefur lengi verið kallað eftir því að fleiri nemendur fái tækifæri til að læra iðngreinar og tæknistörf, störf sem atvinnulífið kallar eftir og sem tryggja ungmennum traustan grunn til framtíðar. Þess vegna setjum við 150 milljónir í að styðja við tilfærslu úr bóknámi í verknám og höldum áfram stækkun fimm verknámsskóla um allt land. Þetta er ekki bara fjárfesting í skólum heldur í nemendum, kennurum og framtíðinni. Við viljum að allir geti lært það sem hentar þeim best, hvort sem það er bóknám, listnám eða verknám.
Þá gleymi ég alls ekki yngri börnunum. Við erum nú loksins að hefja nýtt samræmt námsmat sem lengi hefur verið kallað eftir, hinn svokallaða matsferil sem er stöðu- og framvindupróf með áherslu á lesskilning og stærðfræði. Markmiðið er að kennarar fái betri verkfæri til að mæta þörfum hvers barns, hvort sem það þarf meiri stuðning eða meiri áskoranir. Við ætlum að kveikja neistann sem víðast fyrir börnin.
Virðulegur forseti. Við ætlum einnig að stofna nýjan miðlægan gagnagrunn sem tryggir heildstæða yfirsýn en þannig verður hægt að beita snemmtækum stuðningi og draga úr vanda síðar á skólagöngu, grípa börnin eins fljótt og hægt er. Við ætlum einnig að gera námsgögn upp að 18 ára aldri gjaldfrjáls. Börn okkar munu fá símafrí á skólatíma en við verðum að muna að skólinn er ekki bara vettvangur náms heldur einnig félagslegra samskipta.
Virðulegur forseti. Við leggjum líka mikla áherslu á barnavernd og farsæld barna. Ný heildarlög verða sett um barnavernd þar sem þjónusta við börn með flóttastuðningsþarfir verður m.a. bætt. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir tæplega 7 milljarða kr. aukningu í fjölskyldumál á milli ára. Við erum einnig að setja 3 milljarða í sérhæfða þjónustu fyrir börn með fjölþættan vanda sem þurfa að vera vistuð utan heimilis. Áfram verða settar um 500 milljónir í stuðning við börn af erlendum uppruna en til stóð að fella þetta niður. Þótt það heyri ekki undir mitt ráðuneyti langar mig að minna á að um 21 milljarður fer í barnabætur sem sýnir enn og aftur að þessi ríkisstjórn er með börnin í forgangi. Þá erum við að setja sérstök framlög til að bæta stöðu fjölburaforeldra og þeirra sem veikjast í kjölfar meðgöngu, þá einnig framlög til þeirra foreldra sem missa maka. Þetta eru mannúðarmál og þau skipta máli fyrir lífsafkomu fólks og fjölskylduna.
Virðulegur forseti. Ég er mjög stoltur að geta sagt þingheimi og þjóð að ég mun einnig leggja fram fyrstu heildstæðu framkvæmdaáætlunina gegn fátækt barna. Að útrýma fátækt barna eigum við öll að geta sameinast um. Málið verður vart mikilvægara en það. Það gleður mig líka að geta sagt að fjármunir eru áfram tryggðir í þjóðarhöllina okkar allra sem verður glæsilegur vettvangur fyrir íþróttir, samveru og gleði.
Virðulegur forseti. Kjarni þessarar stefnu er einfaldur: Við viljum byggja samfélag þar sem allir fá jöfn tækifæri, þar sem enginn er skilinn eftir, þar sem börnin okkar og unga fólkið getur látið drauma sína rætast. Við vitum að menntun og barnavernd er ekki kostnaður heldur fjárfesting. Það sem við setjum í börnin okkar í dag fáum við margfalt til baka á morgun í velferð, samfélagslegum styrk og framtíðarhagsæld. Engar öfgar heldur festa og fyrirsjáanleiki er það mikilvægasta sem við getum gert fyrir börnin okkar.