fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa yfirferð og margt ágætt sem kom þarna fram. Ég hef þó töluverðar áhyggjur af menntakerfinu okkar sem hefur einhvern veginn molnað undan núna í svolítinn tíma og ég sé lítið í þessu frumvarpi sem er einhver breytt stefna í aðra átt. Þetta er sama stefnan, skrifuð af sama fólki, sem hefur komið okkur í þá stöðu sem við erum núna í.
Menntamál eru grunnstoð samfélagsins og forsenda verðmætasköpunar og framleiðni. Núna í júní kom fram efnahagsskýrsla fyrir Íslands þar sem kemur fram hve alvarleg staðan er. Það er talað um í skýrslunni að framleiðni á Íslandi muni mögulega lækka um góð 5% sem eru 250–400 milljarðar á ári, eitt heilbrigðiskerfi sem við erum að tapa á hverju ári af því að staðan í menntamálum er þessi. Það er gjörsamlega óþolandi. Við erum með vexti af lánum upp á 125 milljónir, það er talað um það öllum stundum. En það er ekkert talað um þetta og ekkert rætt um þetta hjá hæstv. ráðherra og í hans ráðuneyti. Menntamálaráðuneytið hefur eftirlitshlutverk yfir leik- og grunnskólum og til þess að ná árangri þurfum við að vita hvar skórinn kreppir og hvar vel gengur. Við erum að tala um upphæðir sem eru heilt aukaheilbrigðiskerfi árlega. Að auki eru lánskjör Íslands verri samkvæmt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum af því að staða okkar í menntamálum er þessi, sem þýðir að öll lán á Íslandi eru hærri fyrir vikið og greiðslubyrði af þeim.
Hvað ætlar ráðherrann að gera í þessu? Vonandi fer hann ekki að benda fingri á eitthvað sem aðrir hafa gert. Ráðherrann er búinn að vera marga mánuði í starfi og ég óska þess að fá svör við þessu. (Forseti hringir.) Hér eru upphæðir sem eru ekki 1, 2 milljarðar eða 15, heldur 250–400.