fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir hans innlegg. Ég er innilega sammála honum og við erum virkilega að fara af stað. Ef við tökum framhaldsskólana og sérstaklega verknámið þá erum við að fara að byggja við fimm verknámsskóla, sem er ótrúleg framför. Við erum nú þegar komin langt með það í Breiðholtinu, síðan eru það Suðurnesin, Ísafjörður, Sauðárkrókur og Akureyri. Ég verð bara að segja alveg eins og er að mér brá, varð eiginlega fyrir áfalli þegar ég fór að skoða Menntaskólann á Ísafirði núna um helgina og sá að þar er verknámið í kjallara. Ég var búinn að sjá þetta á myndum en að koma á staðinn er sláandi. Ég bara dáist að hugmyndaflugi og dugnaði þeirra sem eru að vinna þarna við þessar aðstæður, bæði kennara og skólastjórnenda. Þess vegna er svo mikilvægt að koma þessu á, vegna þess að mér fannst ég eiginlega fara langt aftur í tímann. Þegar ég var að læra í Iðnskólanum í Reykjavík fyrir rúmum 50 árum var betri aðstaða og það skelfir mig. Þess vegna verðum við að fara af stað og hugsa upp á nýtt: Hvernig getum við eflt verknám? Hvað þurfum við að gera til þess? Hvernig getum við einfaldað alla ferla? Þurfum við að vera í þrjú, fjögur ár að byggja upp skóla? Við verðum að reyna að finna lausnir. Ég er að kynna mér lausnir og sá t.d. lausnir sem Danir eru komnir með. Það eru ýmsar lausnir í boði sem við verðum að skoða og fara í. Við megum ekki sitja í þessum förum áfram. Við erum að biðja um fleiri menntaða úr verknámi og til þess þurfum við skólana. Ég segi bara: Þar er ég og ég ætla aldeilis að taka til þar.