fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu sem er mjög mikilvæg. Mér skilst að með ungmennastefnu séum við langt á eftir, það eru held ég einhver tvö lönd, við og eitt annað sem eru ekki búin að setja þessa stefnu. Ég varð mjög hissa þegar ég uppgötvaði það og þess vegna er það núna vinna sem er hafin. Ég ætla að gefa mér góðan tíma fram á næsta ár til að vinna þessa stefnu en til að hún verði virkilega góð þá þurfum við að fá ungmennin með. Ég segi alltaf og það er eiginlega mantra sem við höfum margoft sagt: Ekkert um okkur án okkar. Unga fólkið okkar biður um það, það vill fá að vera með í að móta stefnuna. Við sem erum fullorðin eigum ekki að móta stefnu ein og sér fyrir unga fólkið. Það ætlar að nota þessa stefnu, þetta varðar þau og þau eiga að fá að koma að þessu. Þeirra rödd á að heyrast og það er það sem ég ætla mér að gera.