157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:52]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir góða umræðu hér um grunnstoð samfélagsins eins og komið hefur fram hér í dag. Ég held að við séum öll sammála um að það er mjög mikilvægt að við lyftum menntamálunum meira upp og stöðu barnanna okkar því að það er grunnurinn okkar sem við eigum að fjárfesta í og hlúa að með miklu skilmerkilegri hætti en áður hefur verið. Ég fagna því þegar ráðherra kemur hér og lýsir yfir því að hér eigi að hefja stórsókn í menntamálum og ég hlakka til að vera þátttakandi í þeirri vegferð ásamt vonandi flestum þingmönnum hér inni, og vonandi öllum, vegna þess að við hljótum að geta sameinast um það þverpólitískt að gera vel þegar kemur að þessum mikilvæga málaflokki.

Það er búið að drepa á mörgu sem ég var forvitin að heyra um og gaman að heyra af heimsókn hæstv. ráðherra í minn gamla skóla, Menntaskólann á Ísafirði, þar sem einmitt útsjónarsemin hefur verið svakaleg upp á síðkastið og vonandi horfir til betri vegar þegar kemur að aðstöðu þar vegna þess að þar er sannarlega unnið frábært starf og frábær skóli. Ég ætlaði að spyrja um það en það er komið, þannig að mig langar aðeins að færa ljósið yfir í farsældina og kannski stöðu barna með fjölþættan vanda. Það er annar angi sem við verðum að setja fókus á til að ná betur utan um þann gífurlega þunga málaflokk sem ríkið er búið að taka núna yfir og létta þar með undir hjá sveitarfélögunum, í góðu samstarfi við sveitarfélögin. Ég væri til í að fá að heyra aðeins frá hæstv. ráðherra hver næstu leiðarljós og næstu skref eru hvað varðar börn með fjölþættan vanda og hvernig við getum gripið þann málaflokk hraðar vegna þess að ég held að við skynjum það flestöll hér inni að þetta er svolítið svifaseint. Við þurfum að ná betur utan um það þannig að ég væri til í að fá að heyra nokkur orð um það.