fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er nefnilega þetta með kerfin og fólkið og hvernig kerfin grípa fólkið en ekki öfugt. Ég held að það sé það sem leiðarljósið hér hlýtur að vera. Hvernig getum við einhvern veginn náð að setja börnin í miðjuna og tryggt að kerfið fúnkeri vel í kringum þarfir þess barns hverju sinni? Þar skipta líka gögn og greiningar máli, að við áttum okkur á því: Hver er grunnpunkturinn, hver er staða kerfisins akkúrat núna, hvers vegna erum við hér o.s.frv.? Ég er sammála því að við eigum að líta fram á við en við eigum líka að átta okkur á því hvar okkur vantar betra aðgengi að upplýsingum.
Mig langar líka hér í mínu síðara andsvari að spyrja aðeins út í stöðuna á Farsældartúni vegna þess að það er svona staður þar sem hugmyndafræðin er að vera með einn stað þar sem öll kerfin koma og mæta barninu. En aftur, það er ekki nóg að taka skóflustungu, það verða að sjást þess merki að það eigi að byggja upp og ég væri til í að fá að heyra hver framtíðarsýnin er þegar kemur að því að tryggja að svona úrræði rísi.