157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:58]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er alveg sammála. Eitt af því sem við erum núna t.d. að gera, sem er mjög nauðsynlegur hlutur og bara löngu tímabært, eru barnaverndarlögin. Við erum að fara að taka þau algjörlega og þau koma inn í vetur þannig að þar munum við líka einblína á þessi málefni.

Ef við förum yfir í Farsældartún — þetta er mjög spennandi, ég verð bara að segja alveg eins og er. Mér finnst mjög spennandi að vita það að við erum að spá í það hvar við getum komið fyrir Barna- og fjölskyldustofu, Ráðgjafar- og greiningarstöð, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, jafnvel geðheilsumiðstöð barna, Sjónstöðinni, öllu sem varðar börn og þeirra þarfir á einum stað, hugsið ykkur. Ég kem úr því að vera í stjórn Sjálfsbjargar og Öryrkjabandalagsins. Þar þurfti fólk að fara í allar áttir, og jafnvel börn, til að finna þjónustuna og það tók kannski nokkra daga. Það var ekki til miðstöð þar sem þú gast fengið alla þjónustu á sama staðnum. (Forseti hringir.) Þetta er það sem við þurfum að taka á og byggja upp og helst á flestum stöðum.