fjárlög 2026.
Forseti. Við höfum nú í tvo daga talað um þau fjárlög sem ég mælti fyrir í gær. Það eru fjárlög sem marka ákveðin tímamót. Þetta eru fyrstu fjárlög þessarar ríkisstjórnar. Fjárlögin sýna að við ætlum að fylgja eftir því sem við lofuðum. Fjárlögin eru í fullu samræmi við þá fjármálaáætlun sem við lögðum fram í vor. Þrátt fyrir efasemdir margra þingmanna á þeim tíma sýna þau að við höfum það sem þarf til að standa við þau loforð sem við höfum gefið, loforð um að bæta stöðu ríkissjóðs, koma honum aftur í jafnvægi og þessi fjárlög sýna svo ekki verður um villst að það markmið okkar að ná hallalausum fjárlögum árið 2027 munum við standa við. Það er samt þannig að í þessu frumvarpi eru skýrar áherslur ríkisstjórnarinnar, skýrar áherslur um fjárfestingar í þágu öryggis landsmanna. Þessar áherslur koma fram í auknum fjárheimildum til margra liða sem góð samstaða er um meðal þingmanna að eru þjóðþrifamál. Þau snúa að heilbrigðismálum, þau snúa að réttindum þegnanna, þau snúa að styrkingu öryggismála og þau snúa að innviðum.
Hér hefur átt sér stað lífleg og góð umræða. Ég er þakklátur henni. Nú er það verkefni þingsins og fjárlaganefndar að fara yfir fjárlögin. Ég hlakka til samstarfs við nefndina um það verkefni þegar umræðum hér er lokið.