fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það hefur verið gaman að taka þátt í og fylgjast með þessari 1. umræðu fjárlaga sem eru, eins og hér hefur verið nefnt, fyrstu fjárlög nýrrar ríkisstjórnar. Ég ítreka þakkir til fjármálaráðherra og ríkisstjórnarinnar fyrir frumvarpið sem eykur metnaðinn í að ná hallalausum fjárlögum, flýtir ferlinu sem lagt er upp með í fjármálaáætlun og er allt til bóta. Mér heyrist raunar á þingheimi hér, hvaðan úr flokki sem fólk talar, að þegar nánar er að gáð, undir yfirborð umræðunnar, þá sé fólk almennt sammála um að það sé tækifæri til að ná jafnvægi í ríkisfjármálunum þó að það sé auðvelt að láta aðrar staðhæfingar villa sér sýn hvað meginstraum umræðunnar varðar. Kannski má segja að umræðan hljómi stundum eins og stjórnarandstaðan sé ósátt við að tekjurnar séu þetta miklar, ósátt við að útgjöldin séu ekki hærri en mest ósátt við hver afkoman er á endanum — dálítið eins og tvær mjög skemmtilegar og góðar kerlingar sem ég rakst á í horni á einni þjónustumiðstöð borgarinnar þar sem útbúinn er prýðismatur í hverju hádegi. Önnur sagði: Hrikalega er þetta vont. Og hin svaraði að bragði: Já, alveg ógeðslegt og svo eru skammtarnir allt of litlir. Þannig verður umræðan svolítið í pólitíkinni en hér erum við að kynna hinar breiðu línur.
Ég tek undir með fjármálaráðherra að það verður spennandi verkefni að fara ofan í frumvarpið í smáatriðum. Ráðherrar hvers og eins málaflokks hafa verið hér til andsvara varðandi sína málaflokka og það hefur dýpkað skilninginn og upplýst umræðuna. En það er að ýmsu að hyggja og ég held að það hafi farið fyrir fleirum eins og mér í umræðunni að maður hefur skrifað niður hjá sér ýmsar spurningar sem vakna. Fróðleiksþorstinn er mikill að átta sig á hvernig hlutir hafa þróast yfir tíma og hvernig forgangsröðunin birtist, hvort hún sé nógu skörp eða brött og hvar megi hugsanlega herða á. Ég hef heyrt mikinn metnað hjá einstökum þingmönnum í að spara jafnvel meira, þó að fólk geymi kannski uppi í erminni þær tillögur því að þær hafa ekki margar komið fram. En hver veit nema í starfi fjárlaganefndarinnar komi fram útpældar hugmyndir um einhverjar breytingar og annað sem kannski hefur ekki verið hugsað í gegn við frágang frumvarpsins. Ég vonast til góðs samstarfs þvert á flokka í nefndinni og auðvitað við aðrar fagnefndir sem brenna fyrir sínum málaflokkum og forgangsröðun í þeim.
Ég þakka að öðru leyti fyrir góða 1. umræðu og hlakka til vinnunnar á þessu hausti.