fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Þetta er í fyrsta sinn sem ég tek þátt í 1. umræðu um fjárlög og þykir mér hún bara hafa verið afar góð, uppbyggileg og skemmtileg. Ég segi eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson að á köflum hefur málflutningur minni hlutans verið á þá leið að tekjur séu of miklar, útgjöld mættu víða vera meiri en afkoman mætti þó engu að síður vera betri, en það svo sem kemur ekkert á óvart.
Eins og ég kom inn á í minni fyrri ræðu í upphafi þessarar umræðu er gríðarlega mikill þrýstingur á að útgjöld séu meiri í þennan málaflokk en hinn og sömuleiðis mikill þrýstingur á að sköttum og gjöldum sé haldið í lágmarki. Mér finnst ríkisstjórninni almennt hafa tekist mjög vel til við þetta frumvarp sem liggur nú fyrir þinginu og hefur verið hér til umræðu. Það er vissulega svo að útgjöld eru að aukast en það er mjög vel valið hvar er verið að bæta í eins og við höfum heyrt í umræðunni um málaflokka ráðherranna. Það eru öryggis- og varnarmál. Það eru innviðir landsins og stuðningur við þau sem höllustum fæti standa. Þrátt fyrir þessa útgjaldaaukningu í vel völdum málaflokkum eru þetta aðhaldssöm fjárlög. Það er ekkert bákn sem er hér að blásast út eins og sumir hafa fullyrt. Það hefur átt sér stað mikil fólksfjölgun. Hagkerfið er að stækka. Samkvæmt þessu fjárlagafrumvarpi munu útgjöld ríkisins sem hlutfall af vergri landsframleiðslu standa í stað. Þetta er nokkuð hlutlaust. Ég segi aftur: Það er ekkert bákn sem er hér verið að blása út. Á tímabili fjármálaáætlunar mun hlutfall af vergri landsframleiðslu minnka, þannig að báknið er í raun og veru að minnka. Það styður, þvert á það sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason fullyrti hér áðan, við áframhaldandi lækkun verðbólgu og vaxta.
Hér hefur verið rætt um það úrræði að ráðstafa séreignarsparnaði inn á lán. Ég ætla bara að nýta tækifærið og lýsa því yfir að ég er sammála þeim sem hafa tjáð þá skoðun sína að vilja framlengja úrræðið. Þessi leið hefur nýst fólki vel til að draga úr greiðslubyrði og ekki veitir af í því hávaxtaumhverfi sem við búum við. En það hefur ekki — ólíkt því sem t.d. hv. þm. Vilhjálmur Árnason fullyrti í ræðu og sömuleiðis í grein á Vísi í dag — verið tekin ákvörðun um það. Þetta úrræði um ráðstöfun séreignarsparnaðar hefur ekki með fjármál ríkisins á næsta ári að gera. Þar af leiðandi er ekkert óeðlilegt við það að ekki sé tekin ákvörðun um það í þessu fjárlagafrumvarpi. Það er þingsins að taka ákvörðun um það og ég hlakka bara til að skoða það betur. Munum að það er Alþingi sem endanlega afgreiðir fjárlög. Við erum komin með þetta að mínu mati afar góða plagg frá ríkisstjórninni til að rýna í og vinna, en það er Alþingi sem hefur fjárveitingarvaldið og það er Alþingi sem mun endanlega afgreiða fjárlög.
Ég tek undir með hv. þm. Degi B. Eggertssyni, ég hlakka mikið til að rýna í þetta frumvarp í smáatriðum í fjárlaganefnd og hlakka til komandi samstarfs.