157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

aðgerðir stjórnvalda í útlendingamálum.

[15:12]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisspurningu og vek athygli á því að þetta er ekkert nýtt sjónarhorn í málinu. Þeir sem eru læsir á tölur hafa áttað sig á því í langan tíma að það hefur orðið breyting á íslensku samfélagi. Það sem ég hef hins vegar minna heyrt frá formanni Miðflokksins og hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni er skoðun hans á atvinnustefnu og þróun innflytjendamála út af atvinnumálum hér á landi. Þetta hefur einskorðast við eina tegund innflytjenda, ef svo má segja. Það eru margar ástæður fyrir því að Ísland hefur breyst á undanförnum árum. Stór ástæða fyrir því er flutningur vinnuafls hingað frá EES-ríkjum sem krefjast í raun engra sérstakra aðgerða. Fólk kemur hingað vegna þess að við erum að skapa störf sem erlent vinnuafl sækir um. Síðan höfum við líka verið með ákveðna stöðu uppi í kerfi dvalarleyfishafa og þar er t.d. hæstv. dómsmálaráðherra í ákveðinni tiltekt við að fara yfir þá þróun, velta því fyrir sér hvort það séu einhverjar gloppur í því kerfi að samræma atvinnuleyfi og dvalarleyfi og þess háttar. Ég spyr hv. þingmann sérstaklega út í atvinnustefnu og innflytjendamál vegna þess að þessi ríkisstjórn er einmitt að velta því fyrir sér hvers konar störf eru að verða til hér, hvort við séum fyrst og fremst í vinnuaflsfrekri starfamyndun hér á landi sem kannski vinnur ekki með fámennri þjóð. Þó að það sé margt og mikið af ágætu fólki sem kemur hingað til lands að vinna þau störf þá hefur það áhrif, já, á innviði, húsnæði, vegi og þessa sögu sem allir þekkja.

Punkturinn minn er einfaldlega þessi: Þetta eru ekki eitt heldur margt. Við erum að fara í ákveðna tiltekt í útlendingamálum. Við erum að fara í að afnema 18 mánaða regluna, sem var séríslensk regla, og við erum að taka á ákveðnum málum í skipulagðri brotastarfsemi. En við erum líka að nálgast þetta út frá heildrænu sjónarmiði sem eru atvinnustefnumálin og það er eitthvað sem ég myndi gjarnan vilja heyra frá hv. þingmanni þótt ég viti að hann er fyrirspyrjandi hér.