aðgerðir stjórnvalda í útlendingamálum.
Frú forseti. Ég ætlaði einmitt að minna á það út á hvað fyrirspurnatímar til ráðherra ganga. Þingmenn spyrja spurninga og hæstv. ráðherrar — ja, stundum reyna þeir að svara en kannski oftar en ekki forðast þeir það. Ég ætla þó að gefa hæstv. forsætisráðherra áfram tækifæri til að svara spurningunni. Raunar þakka ég líka fyrir hreinskilnina þegar hæstv. ráðherra sagði að þetta væru staðreyndir sem hefðu verið öllum ljósar sem kunna að lesa úr tölum. Í því fólst auðvitað dulin gagnrýni á samherja hæstv. ráðherra í Samfylkingunni, að þeir kunni ekki að lesa úr tölum miðað við hvernig þeir hafa talað á undanförnum árum.
En spurningin er þessi: Hyggst hæstv. ráðherra, umfram það sem hæstv. dómsmálaráðherra og fyrrverandi dómsmálaráðherrar hafa rætt, með litlu útlendingafrumvörpin, grípa til einhverra aðgerða í samræmi við tilefnið? Ég heyri hæstv. forsætisráðherra hér bara endurtaka að það þurfi nú að skoða eitt og annað, velta hlutum fyrir sér. Það er áhyggjuefni ef menn eru ekki lengra komnir í því að ná tökum á þessu þrátt fyrir tölfræðilegan skilning hæstv. ráðherra á fjöldanum (Forseti hringir.) Að menn séu ekki lengra komnir með viðbrögðin en að þeir séu að velta því fyrir sér hvort það sé eitthvað að í þessu kerfi, þessu stjórnlausa kerfi, frú forseti.