aðgerðir stjórnvalda í útlendingamálum.
Forseti. Mér er ljúft og skylt að svara þessari spurningu beint enda er það augljóst öllum þeim sem lesa þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar að þar inni eru mál sem munu m.a. taka á þessum málum. Þar er frumvarp þar sem er verið að fjalla um afturköllun alþjóðlegrar verndar fyrir alvarleg eða síendurtekin brot. Inni í því máli er líka verið að taka úr sambandi 18 mánaða regluna en þetta er séríslensk regla. Það á líka að fara að leggja hér fram frumvarp um brottfararmiðstöð, sem felur í sér m.a. þá breytingu að við hættum að vista fólk sem á að vísa úr landi í gæsluvarðhaldi. Það er líka verið að innleiða hælispakka Evrópusambandsins. Það er búið að stofna atvinnustefnuráð. Það er búið að skilgreina markmið atvinnustefnuráðsins. Þetta eru allt hlutir sem eru að koma hér inn í þingið og ég kalla þá eftir stuðningi þingheims við þessi góðu og mikilvægu mál en jafnframt að við ræðum á almennum nótum um að breyting á íslensku samfélagi er ekki út af einum hlut heldur mörgum. Þetta eru atvinnumál, þetta eru líka, já, hælismál, þetta eru dvalarleyfismál og atvinnuleyfismál (Forseti hringir.) og við þurfum að ræða þetta allt saman.