157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

reglugerð um skel- og rækjubætur.

[15:17]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegi forseti. Ekkert bólar enn á þeim ívilnunum sem felast í hinu svokallaða byggðakerfi sem heimilt er að veita á grundvelli byggðakvótans, m.a. fyrir rækju- og skelfisksbáta. Slíkar ívilnanir verður að gera fyrir hvert fiskveiðiár fyrir sig og eru reglugerðir þess efnis að jafnaði settar fram í júlí áður en fiskveiðiárið hefst. Hæstv. innviðaráðherra hefur hins vegar ákveðið að bregða af þeirri framkvæmd og hefur enn ekki gefið út slíka reglugerð þrátt fyrir að fiskveiðiárið sé nú þegar hafið. Margar smærri útgerðir reiða sig á línuívilnunina og eru farnar að huga að uppsögnum vegna þeirrar óvissu sem hæstv. ráðherra hefur búið til.

Því vil ég spyrja ráðherra: Hvers vegna hefur reglugerð um skel- og rækjubætur fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 ekki verið gefin út og hvenær hyggst ráðherra setja slíka reglugerð, ætli hann sér að gera það á annað borð?