reglugerð um skel- og rækjubætur.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin, sem mér þóttu nú reyndar ansi rýr. Ráðherra hefur látið hafa það eftir sér að yfir standi yfirgripsmikil endurskoðun á kerfinu. Ráðherrann hefur haft málaflokkinn á sinni könnu í rúma tvo mánuði og enn hefur ekkert gerst. Hvernig stendur á því? Hafði engin undirbúningsvinna átt sér stað hjá fyrri ráðherra sem hafði málaflokkinn á sinni könnu? Þurfti hæstv. innviðaráðherra að byrja þessa vinnu algjörlega frá grunni þegar hann tók við málaflokknum? Í ljósi þess að endurskoðun á kerfinu er ekki lokið, þegar fiskveiðiárið er hafið, herra forseti, telur ráðherra þá ekki réttast að bíða með þessa endurskoðun þangað til fyrir næsta fiskveiðiár í stað þess að umturna kerfinu á miðju fiskveiðiári með tilheyrandi óvissu og óhagræði fyrir fólk og fyrirtæki í sjávarútvegi?