stöðugleikareglan og sérstakar ráðstafanir í tekjuöflun.
Forseti. Þarna erum við ósammála. Hún getur bitið en hún getur líka verið betri. Ég held hreinlega að ég muni senda inn skriflega fyrirspurn til að fá þetta sundurliðað og vind mér yfir í annað. Það er spurningin: Hvernig skilgreinir hæstv. fjármálaráðherra almenning? Hæstv. fjármálaráðherra lét hafa eftir sér að hann vísi því á bug að ríkisstjórnin ætli að hækka skatta á almenning og breytingar hafi bara áhrif í efsta hluta tekjudreifingarinnar. Nú þegar fjárlagafrumvarpið er komið fram liggur fyrir að hækka á gríðarlega mikið skatta og gjöld. Má þar nefna margvíslegar hækkanir á bifreiðar, hækkanir á tóbaki og áfengi, hækkanir á sóknargjöldum, hækkun á útvarpsgjaldi, hækkun í Framkvæmdasjóð aldraðra, hækkun á sköttum hjá hjónum og sambúðarfólki o.s.frv. Það er sennilega enginn sem myndi telja þessar hækkanir bara hækkanir á þá tekjuhæstu. Því spyr ég: Hvernig skilgreinir hæstv. fjármálaráðherra almenning?