stöðugleikareglan og sérstakar ráðstafanir í tekjuöflun.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir aðra ágæta spurningu. Nú er þetta spurning sem maður hefði frekar búist við í mínu fyrra starfi í Háskóla Íslands, að skilgreina hugtök, en mér er bæði ljúft og skylt að taka það að mér og almenningur er þá allir Íslendingar. Nú tekur hv. þingmaður orð mín aðeins úr samhengi. Þegar talað er um áhrif skattkerfisbreytinga á efsta hluta tekjudreifingarinnar var ég einungis að ræða um afnám svokallaðrar samsköttunar og þegar rætt er um breytingar í fjárlagafrumvarpinu þá eru sem sagt engar breytingar í fjárlagafrumvarpinu sem ekki höfðu þegar verið tilkynntar í fjármálaáætlun. Ég fæ nú tækifæri til að segja ýmislegt, sjálfsagt er hægt að klippa það saman með ýmsum hætti en ég held að það sé betra að við höldum okkur við það að ræða málin á grundvelli þess sem sagt er í samhengi frekar en að klippa það í sundur og líma það svo aftur saman.