fjárlög og afkomuhorfur þessa árs.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að eiga orðastað við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, svolítið á svipuðum nótum og við vorum að ræða hér í síðustu viku varðandi fjárlögin. Það sem ég var að ræða þá var m.a. mikilvægi þess að upplýsingarnar sem við komum fram með hér úr þessum ræðustól og í fjölmiðlum séu réttar og séu sambærilegar. Í síðustu viku var verið að ræða skuldahlutfall og Maastricht-viðmiðin sem eru algjörlega sitt hvað. Skuldahlutfallið er inni í fjárlagafrumvarpinu, litlausu bókinni eins og ég nefndi, og hitt ekki. Svo koma menn hér upp í pontu og fara að tala um Maastricht-viðmiðin sem eru allt aðrar tölur og hvergi sjáanlegar í bókinni góðu.
Að þessu sögðu langar mig að spyrja hæstv. ráðherra um ummæli sem hann lét falla þann 10. september í viðtali á Rás 2, þar sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sagði að fjárlögin gerðu ráð fyrir 63 milljarða kr. halla í ár. Hins vegar þegar ég les bókina góðu, sem er nýútgefin og við vorum að ræða í síðustu viku, fjárlögin, þá stendur nú, með leyfi forseta, á bls. 116 í þeirri bók:
„Afkomuhorfur yfirstandandi árs hafa batnað verulega frá áætlun fjárlaga ársins 2025. Áætlað er að heildarafkoma ríkissjóðs verði neikvæð um 19 ma.kr. eða 0,4% af VLF samanborið við halla um 63 ma.kr. …“
Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort sé rétt, ummælin í vikunni eða fjárlögin.