fjárlög og afkomuhorfur þessa árs.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir spurninguna og svarið er einfalt: Hvort tveggja er rétt. Ástæðan er sú, og glöggir þingmenn hefðu getað áttað sig á því hefðu þeir hlustað náið á ræðu hv. þingmanns, að ég nefndi annars vegar fjárlög á Rás 2 og þau voru sannarlega samþykkt hér út af Alþingi með 63 milljarða halla. Afkoma ríkisins er annað mál, metið eftir á. En sé hv. þingmaður að fiska eftir því hvort afkoma ríkisins hafi batnað eftir að ég tók við þá get ég staðfest það. [Hlátur í þingsal.]