fjárlög og afkomuhorfur þessa árs.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir mjög greinargott svar. Það er alveg rétt að heildarafkoman hefur nefnilega batnað töluvert og er, eins og hæstv. ráðherra staðfesti hér, áætluð 19 milljarðar á árinu 2025. Í raun og veru fer maður að velta fyrir sér þessari orðræðu sem átti sér stað í upphafi þessa kjörtímabils þar sem forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar héldu því fram að það bú sem þau tóku við væri miklu verr stætt en þau höfðu áætlað. Nú er komið í ljós að það var rangt. Staðan er miklu betri (Forseti hringir.) heldur en menn gerðu ráð fyrir og því spyr ég: Er það ekki rétt? Er ekki staðan miklu betri en menn gerðu ráð fyrir?