157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

skipulagslög.

28. mál
[16:05]
Horfa

Flm. (Hildur Sverrisdóttir) (S):

Frú forseti. Verðbólgan er að reynast okkur æði þrálát. Það er staðreynd sem við búum við í dag en þarf ekki að vera svo um framtíð alla. Það þarf að grípa til aðgerða, taka til, eins og hæstv. forsætisráðherra hefur sjálf komist oft að orði undanfarna daga, en það þarf þá að láta verkin tala fyrir alvöru. Þegar kemur að verðbólguþróun undanfarinna ára og missera er ekkert launungarmál að þróun húsnæðisverðs hefur spilað stórt hlutverk og átt sinn þátt í því að vextir hér eru háir með tilheyrandi byrðum fyrir fólkið í landinu. Það er verkefni stjórnmálanna að koma með lausnir þegar svo er í pottinn búið. Það kann hins vegar að vera freistandi fyrir stjórnmálamenn sem horfa kannski bara til næsta prófkjörs eða næstu kosninga að bregðast við með einföldum og þægilegum plástrum sem hljómar kannski vel á blaði en fela ekki í sér neina raunverulega lausn þegar öllu er á botninn hvolft, gera jafnvel illt verra þar sem ráðist er sí og endurtekið að t.d. eftirspurnaranga málsins en ekki framboðshliðinni þar sem vandinn raunverulega liggur. Skiljanlegt að einhverju leyti, eðli málsins samkvæmt eða jafnvel eðli mannsins. En það gengur ekki til lengdar, frú forseti. Ábyrgir stjórnmálamenn horfa til lengri tíma og til flóknari úrlausnarefna sem hljóma kannski ekki jafn auðveldlega og plástrarnir. Frumvarpið sem hér er mælt fyrir gerir nákvæmlega það. Það verður að vera verkefni stjórnmálamanna að leita allra raunhæfra leiða til að stuðla að auknu framboði húsnæðis til frambúðar. Framboðsvandinn verður aftur á móti ekki leystur á einum degi eða með einum plástri. Stöðugt þarf að vinna í því að tryggja nægt framboð, takmarka flöskuhálsa í uppbyggingu og vinna jafnframt ötullega að því að koma í veg fyrir öfgafullar sveiflur. Engar skyndilausnir eru til í þeim efnum.

Rétt er að ítreka og undirstrika sérstaklega að þröskuldurinn sem ungt fólk og annað fólk stendur frammi fyrir þegar kemur að því að eignast húsnæði hefur hækkað að undanförnu en hann verður ekki lækkaður að neinu ráði til frambúðar nema unnið sé í átt að auknu framboði af húsnæði. Vísbendingar eru þó um að markaðurinn þokist í átt að jafnvægi, a.m.k. í bili. Hægt hefur á fólksfjölgun á sama tíma og háir vextir og stífar kröfur Seðlabankans um greiðslugetu setja eftirspurn skorður. Lítið ef nokkuð hefur breyst þegar kemur að framboðshliðinni. Við þurfum sífellt að kappkosta að tryggja að byggt sé hraðar, meira og hagkvæmar. Það er lausnin til frambúðar og tryggir að ýktar sveiflur líkt og þær sem við höfum séð undanfarin ár heyri til undantekninga.

Það liggur fyrir að þröngir skipulagsskilmálar og tímafrekt leyfisveitingaferli ásamt sölu og framsali á lóðum séu meðal helstu úrlausnarefna þegar kemur að því að byggja meira, hraðar og hagkvæmar, svo ekki sé minnst á stöðugt og viðvarandi framboð af byggingarhæfum lóðum. Þar bera sveitarfélögin ábyrgð og þar erum við komin að efnisatriðum frumvarps þess sem ég mæli hér fyrir fyrir hönd allra þingmanna Sjálfstæðisflokksins, máls sem var fyrst unnið og lagt fram af þáverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, og er endurflutt hér, enda málið mikilvægt.

Forseti. Á höfuðborgarsvæðinu er lögum samkvæmt í gildi svæðisskipulag þar sem svonefnd vaxtarmörk sveitarfélaganna er að finna. Sveitarfélagsfólk á höfuðborgarsvæðinu hefur gagnrýnt að óheimilt sé að færa út vaxtarmörk þessi til að brjóta nýtt land undir nýjar lóðir sem þörf er á vegna neitunarvalds annarra sveitarfélaga. Vaxtarmörk þessi hafa ekki verið endurskoðuð frá samþykkt svæðisskipulagsins fyrir hartnær áratug síðan og forsendur þess eru löngu úreltar. Raunar er það þó samt svo að aðeins eitt sveitarfélag þarf til að koma í veg fyrir að nokkuð hreyfist í þeim efnum hjá öðrum sveitarfélögum. Frumvarp þetta miðar því að því skynsamlega sanngirnismáli sem miðar að því að aukinn meiri hluta sveitarfélaga þurfi til að samþykkja breytingar á svæðisskipulagi þar sem ótækt er að eitt sveitarfélag hafi slíkt algjört neitunarvald um framtíðaruppbyggingu annarra sveitarfélaga og þau sveitarfélög sem hafa burði til að vaxa hraðar geta það einfaldlega ekki vegna þess neitunarvalds.

Til nánari útskýringar, frú forseti, þá er í 2. mgr. 22. gr. skipulagslaga að finna sérákvæði um svæðisskipulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þar er kveðið á um skyldu þeirra til að gera með sér svæðisskipulag ólíkt því sem gildir um önnur sveitarfélög á landinu. Af því leiðir að sú staða getur og hefur komið upp að eitt sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu getur bundið hendur allra hinna sem vilja gera breytingar á gildandi svæðisskipulagi sem þeim er öllum skylt að eiga aðild að, hvort sem það hugnast þeim eður ei. Svæðisskipulag tekur eðli máls samkvæmt til ákveðins tímabils sem telur jafnvel áratugi og er byggt á tilteknum forsendum hverju sinni. Þær forsendur geta hins vegar hæglega brostið og verða sveitarfélög að eiga raunhæfan möguleika á því að uppfæra svæðisskipulag sitt í samræmi við þessar breyttu forsendur. Þegar svo ber við er eðlilegast að aukinn meiri hluti ráði, þ.e. að a.m.k. fimm af sjö sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu geti kallað fram endurskoðun á svæðisskipulaginu fremur en að eitt sveitarfélag geti þvingað öll hin til að lúta áfram skipulagi sem er í andstöðu við framtíðarsýn þeirra. Í frumvarpinu er því lagt til að við breytingar á lögbundnu svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sé nóg að fyrir liggi samþykki aukins meiri hluta þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að skipulaginu.

Í frumvarpinu er einnig kveðið á um að rétt sé að geta þess að 4. mgr. 22. gr. skipulagslaganna verði áfram óbreytt þar sem sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins er ekki skylt að gera með sér svæðisskipulag. Þá er jafnframt lagt til, kannski er það smáatriði en skiptir þó máli, að sveitarfélagið Álftanes verði fellt úr upptalningunni á sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins þar sem það er ekki lengur sjálfstætt sveitarfélag heldur hluti af Garðabæ og er kannski ágætisvísbending um að ýmsar forsendur eru brotnar í þessum viðmiðum öllum.

Forseti. Fyrir hönd allra þingmanna Sjálfstæðisflokksins leyfi ég mér að ljúka máli mínu hér með því að segja að það þarf einfaldlega að taka af skarið fyrir húsnæðismarkaðinn í heild sinni, horfa á hver raunverulegu vandamálin eru og hvaða lausnir eru þar tiltækar. Þetta frumvarp er viðleitni til þess og ég vona að það fái góða umræðu og brautargengi hér á Alþingi svo að húsnæðismál á höfuðborgarsvæðinu færist í betra horf.