skipulagslög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir framsögu á þessu frumvarpi og fyrir að koma fram með þetta frumvarp. Ég held að það sé mikilvægt að það fái vinnslu í þinginu og fari inn í þá nefnd þar sem það á að vera og að málið verði unnið þar, því að það er margt sem kemur fram í máli hv. þingmanns sem skiptir máli.
Spurning mín til þingmannsins er kannski um þessa skrýtnu stöðu sem þetta fjallar einmitt um, að eitt sveitarfélag geti beitt neitunarvaldi gagnvart hinum. Síðan langaði mig til að spyrja hv. þingmann um hina hliðina á þessari tillögu. Ef fimm af sjö sveitarfélögum geta kallað fram breytingu á svæðisskipulaginu og hugsanlega þá í andstöðu við sveitarfélög sem þetta getur haft mikil áhrif á, hvort þetta sé eina leiðin sem framsögumaður og þeir sem leggja fram frumvarpið sjá, að þetta geti hugsanlega verið betra en núverandi kerfi, eða hvort hætta sé á að þarna sé kölluð fram ákvörðun í andstöðu við sveitarfélög sem svæðisskipulagið gæti jafnvel haft mikil áhrif á, ef eitt eða tvö þeirra væru á móti og svæðisskipulagsbreytingin næði hugsanlega einmitt til þessara sveitarfélaga?