157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

skipulagslög.

28. mál
[16:19]
Horfa

Flm. (Hildur Sverrisdóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni hans seinna andsvar. Nú erum við kannski komin í aðeins hýpótetískar pælingar hér en ég held að með þetta prinsipp, ef svo má segja, skipti máli í rauninni að það sé mjög eðlilegt og skynsamlegt fyrir sveitarfélög sem liggja saman og hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta og jafnvel sömu réttindi eða sömu kröfur, að horfa á það svæði í heild. Ég held að það geti verið mjög skynsamlegt. Þess vegna leggjum við með þessu frumvarpi áherslu á að það er ekki verið að afmá þá samstöðu eða þá samvinnu því að hún getur haft mjög dýrmæta hluti í för með sér og sérstaklega ef horft er til framtíðar og svona stærri sýn sem er okkur pólitíkusunum kannski ekki endilega mjög eðlislægt þar sem það er oft freistandi að horfa frekar til morgundagsins og einhvers sem er kannski aðeins einfaldara. Þannig að það er mjög mikið virði í þessari samstöðu svo lengi sem hún verður ekki íþyngjandi öðrum. Þá held ég að það myndi mjög fljótt brotna undan því, sem ég held að væri mikil synd.

Þannig að ég ætla að leyfa mér að svara spurningu hv. þingmanns á þann hátt að ef sveitarfélögum á því svæði hugnast svo þá mun ekki standa á mér. En ég vil nú alla jafna ekki setja lög og reglur á aðila án þess að vita hvernig þeirra tilfinningar eða þeirra hagsmunir eða þeirra sýn, þeirra sem best þekkja viðkomandi svæði, liggur í því.

En eins og ég segi, það getur komið mjög margt dýrmætt út úr svona samstarfi svo lengi sem enginn upplifir sig undir einhverju oki eða að það sé of íþyngjandi til að það samstarf geti verið eins gott og myndi vera farsælast fyrir alla.