skipulagslög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Kemur ekki á óvart að hv. þingmaður komi hér upp og taki til varna fyrir stefnu sem ég lýsti yfir hér áðan að væri algerlega gjaldþrota. Ég vísaði í mínu máli til umræðu sem hefur verið leidd m.a. af bæjarstjóra Kópavogs. Sem aðili sem gegndi þessu embætti og tók þátt í þessu starfi eins og hv. þingmaður lýsti hér í pontu þekkir hann þessi svæði líklegast betur en ég og mig langar til að spyrja á móti: Kannast hv. þingmaður ekki við þessa stefnu sem hefur verið rekin af meiri hlutanum í Reykjavíkurborg árum og áratugum saman, þessa þéttingarstefnu, þessi ofsafengnu trúarbrögð? Kannast hv. þingmaður ekki við það að hafa sett öðrum bæjarfélögum stólinn fyrir dyrnar varðandi þessi vaxtarmörk? Það eru fréttir þá fyrir mér.
Ég hef ekki gegnt sömu embættum og hv. þingmaður og þekki þessa umræðu bara af því að hafa fylgst með henni í fjölmiðlum og þeim skeytasendingum sem þar hafa verið en sem íbúi í Reykjavíkurborg, sem íbúi í Grafarvogi, þá þykist ég þekkja ágætlega þessa þéttingarstefnu og þessi trúarbrögð meiri hlutans í Reykjavík. Það væri ágætt að heyra afstöðu hv. þingmanns til þess. Ég saknaði þess hins vegar að hv. þingmaður ræddi málið ekki frekar efnislega. Sannarlega er það þannig, eins og hv. þingmaður lýsir, að hagsmunir sveitarfélaganna geta rekist á. Skoðun mín og skoðun annarra hv. þm. Sjálfstæðisflokksins sem standa að þessu máli er einfaldlega sú, og hún er algild, að það sé sanngirnis- og lýðræðismál að meiri hlutinn ráði á þessu svæði fremur en neitunarvald eins sveitarfélags. Mín upplifun er sú og þannig hef ég skilið umræðuna að þar hafi Reykjavíkurborg þvælst mest fyrir.