skipulagslög.
Virðulegi forseti. Það er athyglisvert að hv. þingmaður getur ekki talið upp eitt dæmi þess að Reykjavíkurborg hafi hafnað ósk um breytingu á svæðisskipulagi eða stækkun vaxtarmarka. (DME: Ég hef þegar gert það.) Nei, hún hefur ekki gert það. Og í því tilfelli sem ég taldi upp þá var það þannig að ég sem fulltrúi meiri hlutans í mínu sveitarfélagi kaus með umræddum auglýsingum. Reykjavíkurborg kaus með því að Garðabær gæti farið í auglýsingu á því að stækka vaxtarmörk höfuðborgarsvæðis við Rjúpnahlíð. Reyndar kaus fulltrúi Kópavogs með því líka innan svæðisskipulagsnefndar en síðan var það bæjarstjórn Kópavogs sem hafnaði því einróma.
Nú væri niðurstaða þeirra sem leggja fram þetta frumvarp — ég get alveg farið í efnislega umræðu um þéttingu byggðar og allt það, það er bara góð hugmynd, en hér er verið að leggja til kerfisbreytingu, þá kerfisbreytingu að það verður ekki lengur „consensus“ eða heildarsamþykki allra sveitarfélaga heldur getur eitt sveitarfélag orðið undir í því og fengið í gegn á sig breytingar sem það hefur ekki samþykkt. Og þá gildir það ekki bara — vegna þess að hér í þessum sal finnst öllum ótrúlega gaman að vega að skipulagsvaldi Reykjavíkurborgar. Fátt finnst þingmönnum skemmtilegra að gera heldur en það. Það kemur reyndar á óvart að þingmenn Reykjavíkur taki svona virkan þátt í því en það er mjög vinsælt að reyna að taka til sín skipulagsvald Reykjavíkurborgar.
En þetta getur auðvitað snúist á hinn veginn líka. Þetta getur t.d. þýtt að ef íbúar í efri byggðum Kópavogs fá athafnasvæði við hliðina á sér þá fá þeir ekki rönd við reist vegna þess að það er búið að koma fyrir kerfi þar sem einn ræður. Það þýðir líka að þegar við ræðum um ofanbyggðaveg eða Flóttamannaveg, hvað sem hann er kallaður, í Garðabæ þá er það þannig að ef öll hin sveitarfélögin ákveða að þarna eigi að leggja einhverja hraðbraut í gegnum efri byggðir Garðabæjar þá hefur Garðabær ekkert lengur um það að segja vegna þess að aukinn meiri hluti sveitarfélaga fær að ráða því.
Ég get alveg fjallað meira um þetta efnislega og ég skal glaður fara í ræðu og gefa öðrum þingmönnum kost á að koma í andsvar við mig. En það kemur mér dálítið á óvart að hv. þingmaður hafi ekki getað nefnt eitt einasta dæmi þess að Reykjavíkurborg hafi lagst gegn þessu. Við verðum að hafa í huga að þetta þýðir líka það að önnur sveitarfélög en Reykjavík geta orðið undir þegar að því kemur.