skipulagslög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og já, berin eru súr. Hér kemur hv. þm. Viðreisnar upp og þvær hendur sínar af þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar, vill ekkert kannast við að hafa staðið í vegi fyrir uppbyggingaráformum, að hafa staðið í vegi fyrir hugmyndum frá nærliggjandi sveitarfélögum sem þau hafa ítrekað lýst og tekist á um fyrir augum allra og sú sem hér stendur hefur orðið vitni að. Mér segir svo hugur að hv. þingmaður viti nákvæmlega um hvað er rætt og sé að hengja sig í einhvern orðhengilshátt og einhverja stjórnsýsluframkvæmd. En gott og vel, ég er bara sammála því að það hefur verið mikið kappsmál sumra hv. þingmanna hér á Alþingi að reyna að koma böndum á þennan sértrúarsöfnuð sem stýrir Reykjavíkurborg með tilheyrandi kostnaði og óhagræði og vandkvæðum fyrir íbúa Reykjavíkurborgar sem ég sannarlega er. Skyldi því engan undra að ég komi hér upp ítrekað til að reyna að leggja mitt af mörkum þar. Ég stend við það sem ég segi og samsinni hv. þingmanni varðandi það að auðvitað getur það farið svo að það sé ekki bara Reykjavíkurborg sem sé andlagið í þessu tilliti af því að við erum auðvitað að leggja til breytingu á reglum sem tækju þá til allra sveitarfélaga á þessu svæði. Okkur þykir það hreinlega vera lýðræðis- og réttlætismál að á þessu svæði geti ekki neitunarvald eins sveitarfélags staðið í vegi fyrir uppbyggingu og framþróun á svæðinu öllu sem öll hin sveitarfélögin geta sammælst um.