skipulagslög.
Virðulegi forseti. Mig langar að nálgast þessa umræðu frá svolítið öðrum sjónarhóli. Það sem hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir kom reyndar ítrekað inn á er að þetta snýst um sameiginlega hagsmuni, að þar sem hagsmunir sveitarfélaganna eru saman geti þau sammælst um hvað sé best að gera á þessu svæði — sem kemur smá inn á það sem hv. þm. Víðir Reynisson kom inn á áðan með aðra staði þar sem byggðir eru farnar að mætast, t.d. í Árborg og Flóahreppi eða Eyjafjarðarsveit. Þar á auðvitað að vera tækifæri fyrir sveitarstjórnir að koma saman og ákveða í sameiningu hvað sé best að gera fyrir svæðið út frá þeirra sameiginlegu hagsmunum.
En hvað gerist þegar hagsmunirnir breytast eða, eins og hefur komið upp, hvað gerist ef eitt sveitarfélag sker sig úr? Þá þarf náttúrlega vera til einhver vettvangur svo að fólk geti rætt sig niður á sameiginlega lausn. Og erum við þá kannski komin á þann stað að þetta frumvarp gengur einfaldlega ekki nógu langt? Er þetta svigrúm ekki til staðar án þess að þurfa að ráðast í svona miklar breytingar á svæðisskipulaginu í heild? Þarf að vera einhver annar vettvangur til að taka fyrir, eins og hv. þm. Pawel Bartoszek nefnir, iðnaðarsvæði, athafnasvæði á mörkum Garðabæjar og Kópavogs? Þarf ekki að vera einhver, afsakið slettuna, mekanismi fyrir þessi sveitarfélög að lenda málunum sín á milli og finna sameiginlegu hagsmunina? Ef ekki athafnasvæði, hvað þá? Hvar gætu okkar sameiginlegu hagsmunir verið? Á endanum snýst þetta um að gera það sem er best fyrir íbúana á svæðinu, fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Það er þannig sem mig langar að nálgast þetta.
Svæðisskipulag er rosa falleg hugmynd og ég er mjög hlynntur hugmyndafræðinni en hún þarf að geta verið smá fljótandi í sér og geta staðist tímans tönn því að þarfir breytast. Við sjáum t.d. þær miklu framkvæmdir sem eru núna í tengslum við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þegar þessir stofnvegir verða komnir upp og hin víðfræga borgarlína hefur tekið til starfa þá breytist rosa mikið og þá eru allt í einu svæði orðin eftirsótt sem voru kannski úr alfaraleið fyrir.
Ég styð þetta mál heils hugar og er mjög hrifinn af þessari umræðu sem er hér í salnum.