157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

skipulagslög.

28. mál
[16:46]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir framsögu sína á þessu ágæta máli sem við erum að ræða hér í dag. Ég vil líka þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir sitt framlag til umræðunnar. Hér er um að ræða býsna stórt mál. Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040 eins og það heitir var sett árið 2015 og nú liggur fyrir að knýjandi þörf er fyrir áframhaldandi uppbyggingu innan höfuðborgarsvæðisins. Vísa ég í því sambandi til uppfærðrar spár Hagstofunnar sem taldi að byggja þyrfti íbúðir fyrir 70.000 manns á höfuðborgarsvæðinu fyrr en upphaflega var ráðgert, jafnvel á árunum 2030–2035, þannig að hér er knýjandi þörf á að brjóta land og byggja íbúðir fyrir fólk sem þarf á að halda og þá komum við að þessu máli. Það má sjá af þinglegri meðferð málsins þegar þessi regla sem hér er til umfjöllunar var sett að það var að einhverju leyti fyrirséð að ágreiningur gæti komið upp og mætti jafnvel skilja það sem svo að til hafi staðið að fylgjast með þróun mála og eftir atvikum endurskoða úrlausn þessa ágreinings og þangað erum við einmitt komin. Reglan er hér enn og krefst samþykkis allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Bara til að setja það í samhengi þá gætu vinir mínir í Kjósarhreppi, meiri hlutinn þar, komið í veg fyrir breytingu á skipulaginu ef þeim svo hugnaðist en ætla ég ekki að fara að ætla þeim það.

Ég tel líka mikilvægt í þessu samhengi, þegar löggjafinn er að mæla fyrir um starfsemi sveitarfélaganna, að menn missi ekki sjónar á sjálfsstjórnarrétti sveitarfélaganna eins og mælt er fyrir um hann í stjórnarskránni. Hér er því verkefnið að liðka fyrir breytingum á svæðisskipulaginu og það má svo sem ráða það af svari hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn hv. þingmanns og fyrrverandi bæjarstjóra í Hafnarfirði að vilji standi til þess að liðka fyrir þessum breytingum.

Hér er sem sagt komin þessi tillaga um aukinn meiri hluta hlutaðeigandi sveitarstjórna. Ég hygg að hún sé skynsamleg og í ljósi umræðu hér í þingsal varðandi það hvort Reykjavíkurborg hafi beitt sér formlega gegn breytingum á svæðisskipulagi þá liggur í hlutarins eðli að það reynir ekki á slíkt vald formlega þegar neitunarvaldið er til staðar. Það nægir að stjórnmálamenn, eftir atvikum, til að mynda formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, mæti í viðtöl og tali um að — reyndar undir fyrirsögn um að lífsgæðakjarni í Gunnarshólma yrði aldrei að veruleika. Þetta var afstaða formanns skipulagsráðs á þeim tíma og þá væntanlega sett fram í krafti þess valds sem borgin hefur samkvæmt þessu lagaákvæði.