skipulagslög.
Virðulegi forseti. Það er bæði gaman og heiður að fá að koma hér og eiga orðastað við þingmenn Sjálfstæðisflokksins um þessa hugmyndafræði. Þó svo að mín afstaða til þess með hvaða hætti ég vilji sjá uppbyggingu hér miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu hafi legið fyrir þá vil ég ekkert endilega láta þetta mál hringsnúast um það. Mér finnst þetta snúast um það hvaða kerfi við byggjum upp til að sveitarfélög sem liggja saman á einu atvinnusóknarsvæði, eða jafnvel í einu þéttbýli, taki saman ákvarðanir sem varða þeirra framtíð.
Einhvern tímann þegar ég var að kynna hugmyndina um svæðisskipulag fyrir erlendum gestum sagði ég að þetta væri svolítið eins og hjónaband, að sveitarfélögin ákvæðu að taka sig saman og innan þess þyrftu þau síðan öll að fylgja sömu viðmiðum og hefðu verið sett. Það er reyndar sá munur á höfuðborgarsvæðinu og öðrum sveitarfélögum að höfuðborgarsvæðið hefur í raun ekkert val um að standa í þessu hjónabandi eða ekki. Það er beinlínis, frá árinu 1997, held ég, eða 2010, orðin skylda í lögum að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu verði að mynda með sér svæðisskipulag. Þau hafa ekkert val um það, sveitarfélög annars staðar geta það.
Mig langar því í fyrsta lagi að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að það ætti einnig að skylda önnur svæði á landinu til að vera með svæðisskipulag. Síðan langar mig að velta þessu upp: Ef það verður ekki, telur hann að þessi regla, um að eitt sveitarfélag geti orðið undir í samtali við nágrannasveitarfélög, auki líkur á því eða minnki að sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins hafi með sér samstarf um svæðisskipulag. Það sem ég óttast er að líkurnar minnki. Ég óttast að ef sveitarfélög á einhverju svæði vita að þau verði undir í samtali við hin sveitarfélögin þá minnki líkur á því að sú sveitarstjórn vilji fara í slíka vinnu. Deilir hv. þingmaður ekki þeim áhyggjum með mér?