157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

skipulagslög.

28. mál
[17:03]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að í seinna andsvari hafi ekki falist nein sérstök spurning, heldur meira svona hugleiðing. Ég ætla þá að nýta þessar tvær mínútur aðeins í hugleiðingu á móti. Við eigum að fagna fjölbreytileika í skipulagi. Við eigum að fagna því að sum sveitarfélög leggja áherslu á þéttingu byggðar og stefna á að ná þeim íbúum sem vilja búa í fjölbýli þar sem eru kannski 0,2 bílastæði eða eitthvað slíkt á íbúð. Við eigum líka að fagna því að það séu sveitarfélög sem vilja byggja einbýlishúsalóðir eða parhúsalóðir eða byggja fjölbýli þar sem bílastæðakjallarar eru leyfðir o.s.frv. Þetta á bara allt að vera í boði. Það á ekki að vera þannig að einn geti í raun heft stefnu annars í því að byggja upp þessi hverfi. Það er náttúrlega þannig, og við vitum það, að síðan 2014 þá hefur bara verið heilmikil þróun. Tímarnir hafa breyst. Þeir hafa breyst mjög hratt síðastliðin 11 ár hér á höfuðborgarsvæðinu. Það er ekki þannig að við séum að horfa til þess að einhver einn geti bara ákveðið eitthvað. Við erum að tala um að aukinn meiri hluti, fimm sveitarfélög af sjö t.d., geti samþykkt að leyfa að eitthvert sveitarfélag brjóti nýtt land til að byggja ný hverfi og svoleiðis frekar en að eitt sveitarfélag geti stoppað það. Þarna held ég að stór munur sé á og ég held að þetta sé bara mjög mikilvægt inn í framþróun og framtíðarsýn fyrir höfuðborgarsvæðið og suðvesturhornið í heild.