Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmann. Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið er nú endurflutt með tveimur breytingum sem ég mun fara yfir á eftir. Það er gríðarlega mikilvægt er að frumvarpið nái nú fram að ganga til að tryggja lánþegum betri kjör.
Frumvarpið á sér sögu frá því að lögin voru fyrst endurskoðuð í samræmi við bráðabirgðaákvæði þeirra um að þau skyldu endurskoðuð að þremur árum liðnum frá gildistöku. Mat á áhrifum lagasetningarinnar var framkvæmt og niðurstöðunum skilað til Alþingis í formi skýrslu í árslok 2023. Sérstök umræða um skýrsluna fór fram í byrjun árs 2024. Það sem vakti einkum athygli var að sífellt færri nemendur nýta sér stuðning sjóðsins og ábendingar voru um að núverandi lánafyrirkomulag hentaði ekki stórum hópi námsmanna, einkum þeim sem lakast standa. Þannig næði sjóðurinn ekki að uppfylla markmið um að tryggja námsmönnum jöfn tækifæri til náms, án tillits til efnahagslegrar og félagslegrar stöðu þeirra að öðru leyti.
Á vorþingi 2024 voru gerðar breytingar á Menntasjóðslögunum þar sem lögfest var heimild námsmanna til þess að færa sig einu sinni á milli námsbrauta án þess þó að missa rétt til námsstyrks, auk þess sem ábyrgðarmannakerfi námslána var fellt úr gildi. Þá voru lögfest ákvæði um að Menntasjóði námsmanna væri eingöngu heimilt að fjármagna útlán sjóðsins í gegnum endurlán ríkissjóðs, en frá gildistöku laganna hafa útlán sjóðsins m.a. verið fjármögnuð af eigin fé eldra lánasafns sjóðsins, þ.e. Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Í kjölfar framangreindra breytinga hófst frekari vinna við endurskoðun laganna á grundvelli greiningarvinnu og niðurstöðu vinnustofu sem haldin var í ráðuneytinu. Nánar er gerð grein fyrir þeirri vinnu í samráðskafla frumvarpsins en um var að ræða vinnustofu með fulltrúum námsmannahreyfinganna, BHM, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins, auk starfsmanna og stjórnar sjóðsins og fulltrúum fjármálaráðuneytisins.
Í frumvarpinu eru lagðar til þær breytingar sem hægt er að ráðast í við núverandi aðstæður en vinnu við endurskoðun laganna er ekki lokið.
Virðulegi forseti. Með 1. gr. frumvarpsins er ákvæði um upplýsingaöflun sjóðsins hjá Skattinum rýmkað frá gildandi lögum. Eftir að ákvæði um upplýsingaöflun til Skattsins var breytt árið 2020 hefur sjóðurinn ekki getað aflað nauðsynlegra upplýsinga um tekjur maka vegna beiðna um undanþágu frá afborgunum í eldri lánaflokkum. Þetta hefur leitt til aukinnar vinnu bæði fyrir sjóðinn og lánþega.
Með 2. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á styrkjakerfi námslána þannig að í stað 30% niðurfellingar höfuðstóls námslána í lok náms geta lánþegar sem uppfylla kröfur um námsframvindu fengið 20% niðurfellingu við lok hverrar námsannar og 10% við námslok, ljúki þeir námi innan tilskilinna tímamarka. Með því að fá 20% námsstyrk við lok hverrar námsannar er búinn til aukinn sveigjanleiki í kerfið og líkurnar á því að lánþegi hljóti styrk til niðurfærslu á höfuðstól lánsins ásamt áföllnum verðbótum eykst til muna frá því sem er samkvæmt gildandi lögum. Með því að halda eftir 10% námsstyrk þar til í námslok er hvatningunni til að ljúka námi í samræmi við kröfur um námsframvindu viðkomandi prófgráðu haldið áfram inni, en þó með öðrum hætti en áður.
Í 3. gr. frumvarpsins kemur fram að ríkissjóður beri vaxtakostnað fram að námslokum. Þetta hefur verið svona í reynd en rétt þykir að það sé tekið fram í lögunum.
4. og 5. gr. frumvarpsins fjalla um breytingu á vaxtaviðmiði námslána á þann veg að byggt er á þriggja ára meðaltali vaxta í stað eins mánaðar. Með þessu fyrirkomulagi munu áhrif stýrivaxtaákvarðana Seðlabanka Íslands á vaxtabyrði námslána minnka frá því sem verið hefur. Jafnframt er í greinunum fjallað um fjármögnunarþátt lánakerfisins og kveðið á um að vextir skuli bera sömu breytilegu vexti og kjör og endurlán ríkissjóðs til Menntasjóðs námsmanna hverju sinni að viðbættu föstu vaxtaálagi sem tekur mið af væntum afföllum af endurgreiðslu námslána. Með þessu er fjármögnunarþátturinn lögbundinn með skýrum hætti.
Í 6. gr. frumvarpsins er lagt til að upphafstími afborgana námslána verði lengdur úr 12 mánuðum í 18 mánuði. Í framkvæmd hefur 12 mánaða tímabilið ekki dugað sjóðnum til þess að loka skuldabréfum vegna árs svigrúms lánþega til þess að ljúka námi.
Þá er í 7. gr. frumvarpsins lagt til að heimildarákvæði til bráðabirgða verði rýmkað þannig að heimild til þess að greiða fyrst af H-lánum og síðan af lánum samkvæmt eldri lánaflokkum nái jafnt til þeirra sem eru með tekjutengd lán og jafngreiðslulán. Það er mjög íþyngjandi fyrir lánþega að greiða af þessum lánategundum á sama tíma og lánþegar hafa ítrekað kallað eftir þessari breytingu.
Í 8. gr. er lagt til að breytingar á vaxtaviðmiðum samkvæmt 4. og 5. gr. frumvarpsins nái einnig til þeirra sem þegar hafa tekið H-lán. Skilmálabreytingin er þó ekki afturvirk gagnvart afborgunum af lánum sem þegar hafa fallið í gjalddaga áður en ákvæðið tekur gildi. Auk þess er heimildin tímabundin og fellur úr gildi 1. janúar 2027.
Í 9. gr. er lagt til að lögin taki gildi 1. apríl 2026. Mjög mikilvægt er að Menntasjóður námsmanna fái svigrúm til að aðlaga framkvæmd og kerfi hjá sér áður en breytingarnar taka gildi. Þó er lagt til að 4. og 5. gr. um breytt vaxtaviðmið taki þegar gildi.
Virðulegi forseti. Ég hef hér farið yfir helstu þætti frumvarpsins. Þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá því það var flutt á síðasta löggjafarþingi eru óverulegar og snúa annars vegar að því að vaxtaviðmið samkvæmt 4. og 5. gr. taki þegar gildi í stað þess að taka gildi 1. apríl 2026 og hins vegar snúa þær að orðalagi í bráðabirgðaákvæði 8. gr. frumvarpsins. Þar kemur nú fram að skilmálabreyting H-lána gildi ekki afturvirkt gagnvart afborgunum af lánum sem fallið hafa í gjalddaga áður en ný vaxtaviðmið tóku gildi. Þetta kom fram í athugasemdum við umrædda grein í fyrra frumvarpi en okkur þykir réttara að kveða með skýrum hætti á um þetta í lagatexta.
Ég veit að hæstv. háskóla-, menningar- og nýsköpunarráðherra hefur átt náið samráð við námsmenn við vinnslu þessa frumvarps. Þær breytingar sem hér eru lagðar til eru mikilvægar og tímabærar, sérstaklega varðandi breytingu á styrkjakerfinu með því að nemendur fá 20% niðurfellingu eftir hverja önn, uppfylli þeir skilyrði um námsframvindu, eitthvað sem lengi hefur verið kallað eftir. Eftir sem áður er hvatanum til að ljúka námi á réttum tíma haldið inni í lögunum. Það skiptir líka máli.
Svo skiptir máli að koma til móts við þá stöðu og bregðast við þeirri stöðu sem uppi hefur verið gagnvart námsmönnum að lánin hafa, eins og hv. þingmenn vita, fylgt hækkun vaxta sem hefur komið mjög illa niður á lánþegum. Vaxtaviðmið hafa verið með þeim hætti að stýrivaxtaákvarðanir Seðlabankans hafa lagst af fullum þunga á námslán. Með því að lengja vaxtaviðmið og miða við þriggja ára tímabili í stað fjögurra vikna er bætt úr þessu til hagsbóta fyrir lánþega. Við skulum hafa í huga að þegar verst hefur látið hafa verðtryggðir og óverðtryggðir vextir slegið upp í vaxtaþakið, sem er 4% í tilviki verðtryggðra lána og 9% í tilviki óverðtryggðra lána. Ég held að það sjái allir hvað þetta er afleit staða fyrir námsmenn og lánþega, í raun algerlega ótæk í þeim tilvikum sem þeir uppfylla ekki skilyrði til að hljóta 30% námsstyrki á móti þessum vaxtakostnaði. Ég held að ekki hafi verið gætt nægilega að þessu þegar lögin voru samþykkt á þinginu á sínum tíma, að þetta gæti orðið staðan. Þá var auðvitað lágvaxtaumhverfi hérna á Íslandi. Það er mjög brýnt að bregðast við þessu.
Lög um Menntasjóð námsmanna tóku gildi 1. júlí 2020 og fólu í sér algjörar grundvallarbreytingar á námsmannakerfinu. Áður fólst stuðningur ríkisins við námslánakerfið einkum í afskriftum lána sem ekki fengust greidd til baka og niðurgreiðslu vaxta. Í stað þess var komið á fót námsstyrkjakerfi með innbyggðu hvatakerfi. Markmiðið breytinganna var að stuðla að auknu jafnræði, gagnsæi og skilvirkni í stuðningi ríkisins við námsmenn. Þetta voru góðar breytingar sem við höldum hér áfram með. Sagan undanfarin fimm ár sýnir okkur að við þær aðstæður sem sköpuðust þegar verðbólgan fór á flug og með tilheyrandi vaxtahækkunum myndaðist mjög slæm staða fyrir lánþega sjóðsins sem kallar á að við gerum breytingar á þessum lögum.
Frú forseti. Námslánakerfið er og hefur verið gríðarlega mikilvægt tæki til að jafna stöðu og jafna möguleika fólks til æðri menntunar og það er mikilvægt að styðja vel við þetta kerfi og tryggja að þeir sem þurfa á því að halda geti treyst á það. Ég vona að frumvarpið fái góða umræðu hér í dag og í meðförum þingsins inn í nefnd. Þetta er gríðarlega mikilvægt hagsmunamál fyrir þjóðina og opin og hreinskilin umræða um hvernig hægt er að bæta lánakerfið í þágu nemenda er nauðsynleg til þess að vel takist til. Ég held að þetta séu markmið sem við deilum flest í þessum sal.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.