157. löggjafarþing — 6. fundur, 16. sept. 2025.
Menntasjóður námsmanna.
47. mál
Forseti. Ég held að það sé full ástæða til að farið sé yfir þetta mál á vettvangi nefndarinnar. Mér skilst að þetta hafi með það að gera þegar námsmenn fá undanþágu, það hefur að gera með það að eiga efnalitla foreldra, þetta er auðvitað félagslegur jöfnunarsjóður, og það sé í einhverjum tilvikum horft til þessa atriðis. En þetta er eitthvað sem nefndin ætti að fara yfir, hvort ástæða sé til að hræra í eða hvort þetta eigi sér ekki eðlilegar og góðar skýringar.