157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

47. mál
[17:34]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Hér var vikið aftur að heimild sem nær til gagna um tekjur foreldra. Ég hefði kannski mátt koma skýrar að því hér fyrr í umræðunni að í lögum um Menntasjóð námsmanna, 3. gr. þeirra laga, er fjallað um önnur lán, viðbótarlán sem eru veitt m.a. vegna búsetu hjá efnalitlum foreldrum, það er einn liðurinn þar. Þetta er auðvitað í takti við hlutverk sjóðsins sem félagslegt jöfnunartæki og það er þess vegna sem það þótti rétt að láta þessa gagnaöflunarheimild ná til tekna foreldra, en hún er auðvitað orðuð með þeim hætti að hún ætti að vera túlkuð mjög þröngt og ekki heimilt að afla gagna um annað en það sem nauðsynlegt er vegna þeirra lánveitinga sem um er að ræða hverju sinni.

Hv. þingmaður vék líka að hvötunum og þessum hlutföllum. Eins og við vitum þá gerir frumvarpið ráð fyrir að lánþegar geti hlotið 20% námsstyrk í lok hverrar annar og svo 10% styrk við námslok og hér er því velt upp hvort ástæða sé til að snúa þessu við. Ég held að það hefði kannski bara fullíþyngjandi áhrif, sérstaklega í ljósi þess að með þeim breytingum sem urðu 2020 þá eru námslánin og afborganir tengdar við vaxtastigið hverju sinni og ég held að með þessu fyrirkomulagi sem við erum að lögfesta hér, eða sem hefur áður verið lögfest og við erum að festa í sessi, þá haldist inni mjög ríkur hvati til að ljúka bæði hverri önn og náminu í heild. En við viljum líka halda því opnu fyrir fólk að geta skipt um námsbraut, það er líka ágætt. Ungt fólk er að fóta sig í námi og ákveða hvað það vill verða þegar það verður stórt, (Forseti hringir.) þannig að ég held að þetta sé heppilegt fyrirkomulag eins og lagt er til hér.