Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir andsvarið sem var eiginlega svar við spurningum mínum, hann var með hálfgerð andsvör í ræðunni. Við munum bara skoða þetta í nefndinni með orðalagið varðandi foreldra og að túlka þröngt því það er sífellt verið að seilast frekar og frekar í upplýsingar um fólk hingað og þangað og ég held að við hér á þinginu ættum að vera vakandi fyrir því að upplýsingar hvers slags geta oft verið viðkvæmar og því minna sem þær eru í einhvers konar vinnslu eða dreifingu því ólíklegra er að þær berist einhvers staðar á milli.
Það sem mig langar kannski að ræða, til að svara andsvari hæstv. ráðherra, er þessi texti sem ég minntist á, hvað honum finnist um hann, að búinn sé til aukinn sveigjanleiki í kerfið og að líkurnar aukist á að lánþegi hljóti styrk, hvort þetta sé með einhverjum hætti letjandi orðalag eða með einhverjum hætti að menn séu styrkþegar í stað þess að ljúka námi og styrkurinn komi sjálfkrafa í lok náms, að það sé eðlilegur þáttur að fá styrk, að menn séu ekki að reyna að vinna sér inn einhvern styrk. Þetta orðalag stingur mig og ég hefði viljað fá að heyra álit hæstv. ráðherra á þessu fyrir okkur í nefndinni sem sitjum hér í salnum, við erum hér alla vega þrír, og það væri gott að heyra álit hæstv. ráðherra á þessu.