157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

viðurkenning á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.

48. mál
[17:45]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir að koma með þetta mál hingað til þingsins. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í þessa skyldu sem er verið að setja á, þessa meðalhófsprófun, áður en komið er á fót nýjum lögvernduðum störfum. Ég veit að hann er staðgengill annars ráðherra og kannski til of mikils mælst en það er spurning hvort hann geti kafað djúpt í pokann sinn. Hvernig á að meta meðalhóf hinna ýmsu starfa þegar lögverndun á sér stað? Hefur það verið kostnaðarmetið, er einhver löggildingarskrifstofa eða eitthvað slíkt í kringum þetta batterí? Ég hef ekki séð það sjálfur, en það er þetta tvennt. Meðalhóf er mögulega huglægt mat en það er kannski til einhver rammi um þessi störf hingað og þangað. Er það komið á hreint, er einhver rammi sem við erum að nýta erlendis frá? Eða eru þetta bara einhverjir einstaklingar í samfélaginu sem koma til með að finna út hvað er meðalhóf og hvað er ekki meðalhóf? Og síðan kannski kostnaðurinn við það, hvort það sé búið að pæla í þessu. Ég veit að þetta kemur kannski flatt upp á hæstv. ráðherra og ég skil alveg að hann getur ekki alveg svarað þessu öllu en það væri fróðlegt að heyra aðeins vangaveltur alla vega um þetta.